Skoðun

Skapandi ó­ná­kvæmni tveggja hag­fræðinga

Sirrý Hallgrímsdóttir skrifar

Rannsókn nokkurra hagfræðinga á áhrifum breytts námstíma í framhaldsskólum vakti verulega athygli. Eftir því sem næst verður komist hefur rannsóknin ekki enn verið farið í gegn um vísindalega ritrýningu eða verið birt í ritrýndu tímariti. Vonandi er þess þó ekki langt að bíða.

Ekki tölfræðilega marktækur munur á einkunnum

Í viðtölum á hinum ýmsu fjölmiðlum um rannsóknina lagði Tinna Laufey Ásgeirsdóttir hagfræðingur áherslu á að rannsóknin sýndi að einkunnir þeirra sem fóru í 3 ára framhaldsskólanám voru tæplega 0,5 lægri að meðaltali en þeirra sem fóru í 4 ára framhaldsskólanám. Á grundvelli þessarar niðurstöðu voru dregnar víðtækar ályktanir og að venju fór RÚV mikinn, en fréttastofan þar hefur árum saman af einhverjum ástæðum reynt að finna þessari breytingu allt til foráttu.

Þann 11.04 síðast liðinn birtist fréttaskýring í miðopnu Morgunblaðsins um að blaðið hefði leitað til sérfræðinga á sviði hagrannsókna og tölfræði um mat á þessari rannsókn Gylfa og Tinnu. Þar kemur ýmislegt merkilegt fram, þar á meðal eftirfarandi: Þegar einungis er tekið tillit til námstíma í framhaldsskóla, einkunna og kynferðis nemenda þá sýnir rannsóknin að það er tölfræðilega marktækur munur á því hvort nemandi hafi verið í 3 eða 4 ár í framahaldsskóla. En, og það er mikilvægt, þegar aldri nemanda er bætt við greininguna breytast niðurstöðurnar. Þá er ekki lengur tölfræðilega marktækur munur á einkunnum eftir því hvort nemandi hafi verið í 3 ár eða 4 í framhaldsskóla. Á þetta var sem sagt bent í Morgunblaðinu.

Af hverju að þagna núna?

Þessi niðurstaða er allt önnur en Tinna Laufey ræddi ítrekað í fjölmiðlum. Ég kýs að ræða ekki yfirlýsingar Gylfa Zoega um gerræðisleg vinnubrögð og aukið brottfall í framhaldsskólum (opinber gögn sýna nefnilega að brottfall minnkaði í kjölfar styttingarinnar þvert á yfirlýsingar hans), þær eru, finnst mér, aðeins of vandræðalegar.

En nú er sem sagt rúm vika liðin frá því að greint var frá því að hagfræðingarnir hefðu túlkað eigin rannsókn með frjálslegum og nokkuð skapandi hætti. Það vekur athygli mína að þeir hafa kosið að bregðast ekki við þessum ábendingum. Í ljósi þess hversu mikla áherslu hagfræðingarnir lögðu á að koma niðurstöðum sínum á framfæri (sérstakt myndband gefið út og viðtöl i öllum helstu fjölmiðlum) þá sætir þessi þögn þeirra nokkurri furðu – menn hafa tjáð sig af minna tilefni.

Ég gef mér að hagfræðingarnir séu að undirbúa hvernig útskýra eigi fyrir fræðasamfélaginu, almenningi og stjórnvöldum þessa skapandi ónákvæmni þeirra – en mig grunar að sú útskýring verði aðeins flókin eins og gjarnan gerist þegar fólk lendir í svona stöðu.

Höfundur er verkefnastjóri. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×