Skoðun

Nærandi ferða­þjónusta

Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir skrifar

Nærandi ferðaþjónusta (e. Regenerative tourism) hefur verið áberandi í umræðunni síðustu ár um heim allan. Hugtakið fjallar í stuttu máli um að ferðaþjónustufyrirtæki og gestir þeirra hafi jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt og náttúru. Hugmyndin er að ferðaþjónustufyrirtæki og gestir þeirra skilji við áfangastaðinn í betra ásigkomulagi en áður en að heimsóknin átti sér stað. Það er því farið einu skrefi lengra en sjálfbærni hugsunin sem snýst um að skilja staði eftir í sama ásigkomulagi fyrir komandi kynslóðir. Þessi nýja hugsun um nærandi viðskiptahætti (e. Regenerative business practices) snýst um kerfishugsun og hristir upp í ýmsum rótgrónum hugmyndum í fyrirtækjarekstri um að einungis hagnaður skipti máli. Við erum öll hluti af þessu sama kerfi, við erum hluti af umhverfinu og því samfélagi sem að við búum í. 

Á dögunum fór fram vinnustofa hér á landi á vegum Ferðaklasans og CE4RT (e. Circular Economy for Regenerative Tourism) um nærandi ferðaþjónustu. Þar komu saman yfir 80 fulltrúar frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum úr ferðaþjónustunni á Írlandi, Hollandi, Póllandi, Finnlandi og Íslandi. Það var bæði fræðandi og hvetjandi að sitja vinnustofu með öllum þessum fyrirtækjum sem leggja metnað sinn í nærandi ferðaþjónustu. Það er mikilvægt og spennandi fyrir íslenska ferðaþjónustu að tileinka sér þessa hugmyndafræði til að stuðla að áframhaldandi blómstrandi ferðaþjónustu í sátt við íbúa landsins. 

Líkt og margar aðrar atvinnugreinar þá gengur ferðaþjónustan á auðlindir landsins og því er mikilvægt að leggja sitt af mörkum til að græða upp, fræða og minnka sóun. Ferðaþjónustan getur verið mikilvægt tól til að fræða gesti um sögu, menningu og náttúru. Hún er einnig mikilvæg til að styðja við byggðaþróun og tengja fólk við náttúruna og hvort annað. Ég leyfi mér að fullyrða að ferðaþjónustan á Íslandi sé einmitt að gera mikið af þessu nú þegar. Hinsvegar held ég að stundum vanti samtalið við íbúana. Við á Midgard ætlum að gera betur í að auka upplýsingaflæði um hin ýmsu verkefni sem við erum að taka þátt í og útskýra okkar hugsjón. 

Midgard væri ekki starfandi ef ekki væri fyrir fallegu náttúruperlurnar og nærsamfélagið með allar sínar áhugaverðu hefðir og merkilegu sögu. Það er okkar hlutverk að kynna þessa sögu og hefðir fyrir gestum og styðja við nærsamfélagið með ýmsum hætti. Við þurfum líka að huga að náttúrunni og gerum það meðal annars með því að skapa náttúrutengingu hjá gestum okkar og fræða þau um umhverfisvernd og virðingu fyrir náttúrunni. Við viljum að gestirnir okkar snúi aftur heim eftir magnaða upplifun í okkar íslensku náttúru með fróðleik í farteskinu sem þau geta nýtt sér þegar heim er komið. 

Á Midgard leggjum við mikla áherslu á flokkun og fræðslu til gesta um mikilvægi flokkunar og umhverfismál. Við erum stöðugt að vinna í því að minnka matarsóun og búa til verðmæti úr matarsóuninni. Við erum með umhverfisvæna innkaupastefnu og á veitingastað Midgard bjóðum við upp á á hráefni úr heimabyggð. Við leggjum einnig metnað okkar í að auðga nærsamfélagið með menningarviðburðum. 

Við erum að gera ýmislegt nú þegar en það er líka margt sem að við þurfum að gera betur. Mikilvægt er að fyrirtæki missi ekki móðinn þó að ekki sé hægt að gera allt í einu. Það er mikilvægt að marka sér skýra umhverfisstefnu en vera raunsær og byrja á einu eða fáum verkefnum í einu og fagna öllum litlu sigrunum. Núna í apríl höldum við í annað sinn sjálfbærniviku Midgard. Markmið þessarar viku er að skapa vitundarvakningu, auka fræðslu bæði innan og utan Midgard, græða upp landið, fjarlægja rusl og hafa gaman. Þetta er einn liður í því að stunda nærandi ferðaþjónustu og stuðla að því að okkar nærsamfélag blómstri. Hér fyrir neðan eru opnir viðburðir í sjálfbærni viku Midgard. Við hvetjum öll áhugsöm til að taka þátt. 

  • 24. apríl 21:00: Fyrirlestur um norræna goðafræði á Midgard Base Camp - á ensku 
  • 25. apríl 15:00 -16:30: Plokkhlaup 6 km frá Midgard á Hvolsvelli 
  • 29. apríl 13:00: Fyrirlestur um Bokhasi moltugerð Meltu á Midgard Base Camp - á ensku 
  • 30. apríl: Hreinsun Landeyjarfjöru með Bláa Hernum, tímasetning auglýst síða

Höfundur rekur ferðaþjónustufyrirtækið Midgard á Hvolsvelli ásamt vinum og fjölskyldum og er með meistaragráðu í umhverfis og auðlindafræði. Meistararitgerðin fjallaði um nærandi ferðaþjónustu og sjálfbært viðskiptamódel.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Biskupsval

Sigfinnur Þorleifsson,Vigfús Bjarni Albertsson skrifar

Sjá meira


×