Skoðun

Guð­rún - Rétt­látur og víð­sýnn biskup sem fylgir sam­tímanum

Rannveig Iðunn Ásgeirsdóttir skrifar

Geislandi, vitur, hvetjandi og trú eru nokkur orð sem lýsa sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur. Við í Vox Populi, yngri kirkjukór Grafarvogskirkju, höfum fylgt Guðrúnu síðan 2008, Guðrún hóf störf um vorið og kórinn var stofnaður um haustið. Öll þessi ár hefur Guðrún staðið þétt við bakið á okkur. Hún hefur glaðst með okkur, sungið með okkur, gefið okkur ráð, stappað í okkur stálinu og gefið okkur fjölbreytt tækifæri til söngs.

Hún hefur verið vinsæll prestur meðal meðlima Vox Populi til að sinna hinum ýmsum athöfnum, enda köllum við hana hirðprestinn okkar. Í gegnum árin, hafa margir meðlimir, og fjölskyldur þeirra, beðið hana um að gifta, skíra og jarða ástvini sína. Hún hefur því verið með okkur í gleði og sorg og allt þar á milli.

Guðrún er með einstaklega hlýja nærveru sem þú finnur fyrir um leið og hún mætir á svæðið. Hún hlustar af athygli, er einlæg og auðmjúk sem gerir það að verkum að þú treystir henni fyrir hugmyndum þínum, skoðunum, gleðifréttum og áhyggjuefnum. Hún sýnir skilning og gefur ráð, ef þess er beðið, án þess að dæma. Í hennar návist finnur þú að þú ert hluti af hópnum og skiptir máli.

Hún hefur gott lag á að mæta okkur unga fólkinu þar sem við erum stödd og opna dyr kirkjunnar þannig að okkur finnist við eiga heima þar óháð kyni, kynhneigð, þjóðfélagsstöðu, eða þjóðerni. Í augum Guðrúnar eru allir einstaklingar jafnir.

Hún er kraftmikil og hugmyndarík, en það sem er ekki síður mikilvægt er að hún fylgir hugmyndum sínum alla leið. Hún gerir það þó ekki ein, því eins og sannur leiðtogi útdeilir hún verkefnum og nýtir styrkleika annarra. Hún hefur einstakt lag á því að fá fólk saman í hugmyndavinnu en þannig þróast hugmyndir hennar með fjölbreyttum hópi, innan sem utan Grafarvogskirkju og komast í framkvæmd.

Guðrún er gleðigjafi og samkvæm sjálfri sér, hún er jákvæð og gefur mikið af sér. Hún er opin fyrir nýjum hugmyndum og leitar ráða hjá aðilum með ólíkar skoðanir til að geta tekið sem besta ákvörðun. Hún hefur góða samskiptafærni og les vel í aðstæður, sem er gríðarlega góður kostur.

Síðast en ekki síst þá elskar hún að vera prestur og sinnir starfi sínu af alúð og miklum áhuga. Prédikanirnar hennar eru á mannamáli, hún tengir efni dagsins við aðstæður sem auðvelt er að máta sig við og útskýrir hvað biblíusögurnar gætu þýtt.

Við höfum verið ótrúlega lánsöm að starfa með Guðrúnu í öll þessi ár og styðjum hana hiklaust alla leið til biskups. Við trúum því af öllu hjarta að hún sé rétta manneskjan í embættið og geti gert svo margt fyrir þjóðkirkjuna.

Höfundar eru núverandi og fyrrverandi félagar Vox Populi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×