Skoðun

Mengun á við 1,7 milljón manns í boði SFS

Jón Kaldal skrifar

Af hverju þarf sjókvíaeldi á laxi þarf ekki að sæta sömu mengunarvarnarlögum og önnur starfsemi?

Það verður spennandi að sjá hvort þessari spurningu er svarað í umhverfisskýrslu SFS „Íslenskur sjávarútvegur í fararbroddi“ sem verður kynnt á hádegisfundi samtakanna á Grand hóteli í dag.

Nú eru um 37 þúsund tonn af eldislaxi í sjókvíum við Ísland. Samkvæmt norsku umhverfisstofnunni er skólp frá hverju tonni af eldislaxi í sjókví ígildi skólps frá 16 manneskjum. Þetta þýðir að skólpið sem streymir nú óhreinsað í gegnum netmöskvana er á við 592.000 manns, eða ríflega 50 prósent umfram þann fjölda af fólki sem býr á Íslandi.

Ef framleiðslan nær því hámarki sem gert ráð fyrir verður þessi mengun á við 1,7 milljón manns. Það er á við um 4,5 sinnum fjölda íbúa landsins. Í boði SFS.

Ekki geðslegur kokteill

Og úrgangurinn sem flæðir óhindraður í hafið frá sjókvíaeldi er ekki huggulegur kokteill. Í honum eru fiskaskítur, fóðurleifar, míkróplast í miklu magni, skordýraeitur sem er notað gegn lúsinni og þungmálmurinn kopar, sem er notaður í ásætuvarnir til að koma í veg fyrir að gróður og sjávarlífverur festi sig á netapokana.

Norska Hafrannsóknastofnunin hefur vakið athygli á því að óheft notkun ásætuvarna sem innihalda kopar (svokallað koparoxíð) er grafalvarlegt mál. Efnið leysist ekki upp í náttúrunni heldur hleðst upp og er baneitrað fyrir lífríkið. Í nýlegri skýrslu norska Hafró er bent á að framleiðslufyrirtækjum á landi er umsvifalaust lokað ef þau losa meira en tvö kíló af kopar út í umhverfið. Hvert sjókvíaeldissvæði losar að meðaltali 1.700 kíló á ári í sjóinn. Þetta eru efni sem Arnarlax og Arctic Fish, bæði aðildarfélög í SFS, hafa notað á netin sín um árabil.

Af hverju?

Af hverju er þetta leyft? kunnið þið mögulega að velta fyrir ykkur kæru lesendur. Á Íslandi gilda ströng lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, mörg ár er síðan blátt bann var lagt við notkun botnmálningar sem inniheldur kopar á skip og sveitarfélög hafa bætt við háum gjöldum á íbúa sína til að fjármagna skólphreinsistöðvar á landi.

Við hjá íslenska náttúruverndarsjóðnum skildum þetta ekki heldur. Hvernig getur það viðgengist að sjókvíaeldi á laxi þarf ekki að sæta sömu lögum og önnur starfsemi?

Fyrirspurnir innan kerfisins leiddu okkur á endanum til Umhverfisráðuneytisins. Þar bárust þær skýringar að um sjókvíeldið giltu sérstök lög og reglugerðir vegna þess að „starfsemin fer fram í viðtakanum“.

Hugsið ykkur. Einsog annað búdýrahald á landi þarf landeldi á laxi að lúta öllum áðurnefndum lögum um meðferð skólps, en af því að sjókvíarnar hanga í plastflotholtum í sjónum þá mega þau láta skólpið flæða beint í hafið.

Eðlilega er um 70 prósent þjóðarinnar á móti svona vitleysu.

Furðuleg mótsögn

Þetta er ein af (mörgum) ástæðum þess að óskiljanlegt er að SFS hafi kosið að taka að sér þessa grimmu hagsmunagæslu fyrir sjókvíaeldi. Sú starfsemi er í mótsögn við flest allt það sem íslenskur sjávarútvegur stendur fyrir þegar kemur að umgengni við umhverfið enda skaðar sjókvíaeldi lífríkið. Þar á meðal vist­kerfi í fjörðum sem þjón­a mikilvægu hlutverki í upp­vexti ungviðis þorsk­teg­unda.

Með sjókvíaeldið innaborðs eru heitstrengingar SFS um sterka umhverfisvitund hlægilegur grænþvottur eða grátleg hræsni. Bæði jafnvel.

Höfundur er félagi í Íslenska náttúruverndarsjóðnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Biskupsval

Sigfinnur Þorleifsson,Vigfús Bjarni Albertsson skrifar

Sjá meira


×