Skoðun

Ó­aftur­kræf mis­tök

Auður Axelsdóttir skrifar

Að undanförnu hafa borist fréttir af því að Múlalundi verði lokað. Múlalundur er starfræktur á vegum SÍBS á lóð Reykjalundar í Mosfellsbæ og er m.a. vinnustaður fyrir einstaklinga með skerta starfsorku. Hjá Múlalundi eru framleiddar vörur sem flest okkar nota í daglega lífinu. Áform um að loka þessum vinnustað eru afar sorleg að mínu mati og í raun hef ég áhyggjur af því að hér sé verið að gera óafturkræf mistök.

Störf 35 einstaklinga verða leyst upp og finna á önnur störf með “starfsþróun” í huga. Það er eitthvað skakkt við þetta og hvers vegna þessi hraði?

Einstaklingar sem hafa skerta starfsorku þurfa fyrst og fremst öryggi, virðingu og stuðning til að geta skilað af sér verkefnum og fundið til sín. Að tilheyra vinnustað og vera í hópi skiptir öllu máli. Stuðningur sem byggir á hlýju og hvatningu er lykilatriði og getur skipt sköpum. Í þannig umhverfi er möguleiki á að það þróist aukin starfsgeta með tímanum en makmiðið ætti alltaf að vera vellíðan á vinnustað og aukin lífsgæði starfsfólksins.

Múlalundur er þar að auki í fallegu umhverfi Reykjalundar sem hefur alla tíð lagt metnað í að veita störf með hæfingu og endurhæfingu að leiðarljósi. Í minningunni voru vistmenn Reykjalundar allir að gera eitthvað, unnu m.a. við framleiðslu á leikföngum, lömpum og legókubbum svo dæmi séu tekin. Að hafa hlutverk var dýrmætt, að vinna í hópi fólks styrkti félagslegu tengslin og baráttan við heilsubrest varð bærilegri. Á Múlalundi er byggt á reynslunni sem skapaðist á Reykjalundi um að eflandi umhverfi sem byggir á samkennd og samvinnu getur stuðlað að betri heilsu og vellíðan einstaklinga með skerta starfsorku. Í mínu starfi hef ég hitt nokkra einstaklinga sem hafa fengið þjálfun hjá Múlalundi, í framhaldinu komið við í Hugarafli og síðan haldið á almennan vinnumarkað með góðum árangri. Á leiðinni var það alltumlykjandi stuðningur og hvetjandi umhverfi sem vísaði veginn og skilaði þessum árangri. Þessir einstaklingar gátu á endanum valið störf sem hentuðu þeirra framtíðaráformum.

Nú verður starfshópnum á Múlalundi tvístrað. Og ferlið er komið af stað og sótt hefur verið um störf hér og þar á vegum Vinnumálastofnunar. Ég velti fyrir mér hvort það hafi á einhverjum tímapunkti verið talað við þá einstaklinga sem hér um ræðir, höfðu þau rödd í undirbúningsferlinu þegar ákvörðun var tekin?

Eru til einhverjar staðreyndir um að sé svona hópur leystur upp og fari á aðra vinnustaði, væntanlega einn á hverjum stað, að það skili öðrum og betri niðurstöðum? Er tekið tillit til þess að það að mögulega eini aðilinn á stórum vinnustað með skerta starfsorku geti valdið óöryggi og jafnvel niðurbroti? Er það vænlegt til “starfsþróunar”? Er það meiningin að hver og einn vinnustaður, væntanlega 35 vinnustaðir geti boðið uppá þessa nálgun sem Múlalundur hefur veitt og þróað í áratugi??

Að lokum, verður þessari ákvörðun fylgt eftir með óháðri rannsókn á því hvernig þessum einstaklingum reiðir af, hvort þeim líði betur, hvort þeirra félagslegu þörfum sé mætt og hvort “starfsþróun” sé betri á öðrum vinnustöðum?

Hyggilegast væri að bakka með þessa ákvörðun og beina kröftunum að því að efla innra starf Múlalundar.

Höfundur er framkvæmdastjóri Hugarafls.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Biskupsval

Sigfinnur Þorleifsson,Vigfús Bjarni Albertsson skrifar

Sjá meira


×