Íslenski boltinn

Fylkir fær liðs­styrk frá Stjörnunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigurbergur Áki Jörundsson (nr. 6) er nýjasti leikmaður Fylkis.
Sigurbergur Áki Jörundsson (nr. 6) er nýjasti leikmaður Fylkis. vísir/hulda margrét

Fylkir hefur fengið liðsstyrk á lokadegi félagaskiptagluggans. Sigurbergur Áki Jörundsson er genginn í raðir félagsins frá Stjörnunni.

Sigurbergur, sem er tvítugur varnar- og miðjumaður, skrifaði undir þriggja ára samning við Fylki.

Hann er uppalinn hjá Stjörnunni og lék átta leiki með liðinu í Bestu deildinni  fyrri hluta síðasta tímabils. Seinni hluta þess lék Sigurbergur sjö deildarleiki með HK. Hann lék einnig sem lánsmaður með Gróttu í Lengjudeildinni 2022.

Sigurbergur hefur leikið sextán leiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af þrettán leiki með U-19 ára landsliðinu. Hann lék alla þrjá leiki þess á EM í fyrra.

Fylkir er með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Bestu deildinni. Næsti leikur liðsins er gegn Hetti/Hugin í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×