Skoðun

Tölum saman um að­gengi­legar sál­fræði­með­ferðir

Kristjbörg Þórisdóttir skrifar

Árið 2008 sótti ég sem ungur sálfræðinemi ráðstefnu í Berlín ásamt nokkrum kollegum mínum við Árósarháskóla. Ráðstefnan var á vegum EABCT sem eru Evrópusamtök um hugræna atferlismeðferð. Á ráðstefnunni flutti prófessor í sálfræði við Oxford háskóla í Bretlandi, David M Clark, erindi um nýlegt verkefni sem snerist um að auka aðgengi almennings að gagnreyndum sálfræðimeðferðum. Verkefnið gekk þá undir heitinu IAPT (Improving Access to Psychological Therapies) en í dag gengur það undir heitinu Talking therapies og er fjármagnað af breska ríkissjóðnum. Það er skemmst frá því að segja að ég varð hugfangin af þessu verkefni og hef verið með þetta í huganum alla daga síðan þá.

Ójafnt aðgengi að meðferðum vegna tilfinningalegs vanda og líkamlegra sjúkdóma

Af hverju varð ég svona hugfangin? Jú, vegna þess að verkefnið er hvoru tveggja skynsamlegt og rökrétt og ég sá strax fyrir mér að þetta ættum við að bjóða íslenskum almenningi.

Í bók sinni Thrive benda David M Clark og Richard Layard, breskur hagfræðingur og samstarfsfélagi Davids meðal annars á þá sorglegu staðreynd að nánast allir fá viðeigandi meðferð við líkamlegum sjúkdómum en minna en þriðjungur fólks með tilfinningavanda fær gagnreynda sálfræðimeðferð þrátt fyrir að á hverjum tíma séu að minnsta kosti einn af hverjum sex sem þjáist og myndi greinast með þunglyndi, kvíðaraskanir eða áfallastreituröskun. Gagnreyndar sálfræðimeðferðir hafa verið til í áratugi og eru sífellt í þróun til að hjálpa fólki að leysa úr sínum vandamálum. Sálfræðimeðferðir snúast í raun ekki einungis um að bæta líf fólks frá degi til dags heldur breyta þær lífi fólks til hins betra til lengri tíma. Sá bati hefur gríðarlega mikla samfélagslega arðsemi í för með sér. Sýnt hefur verið fram á að meðferðirnar borga sig upp sjálfar. Hver króna sem sett er í meðferðina skilar sér allt að tífalt til baka.

Tölum saman hér á landi

Það er tímabært að hefja vegferðina hér. Svipaða vegferð og Bretar hafa verið á undir forystu David M Clark undanfarin tæp tuttugu ár. Fleiri lönd fylgja nú í kjölfarið svo sem Noregur, Kanada, Ástralía og Finnland og tryggja aðgengi almennings með tilfinningalegan vanda að viðeigandi meðferð. Til þess að slíkt verkefni heppnist er ekki nóg að ráða bara inn sálfræðinga hér og þar. Það þarf að skipuleggja verkefnið vel, setja af stað tilraunasetur, koma af stað gagnagrunnum og kerfum sem halda utan um verkefnið, tölfræði þess, tryggja samræmingu og aðgengi að meðferðarleiðarvísum, árangursmælingum, þjálfun og handleiðslu meðferðaraðila auk þess að vinna rannsóknir samhliða á framgangi og árangri í samstarfi við háskólana og fræðasamfélagið.

Við erum lítið land og það er mín skoðun að það sé styrkleiki okkar varðandi þetta verkefni. Með því að vera lítil getum við verið stór í slíkri uppbyggingu því kerfið okkar er ekki stórt og boðleiðirnar stuttar. Við getum gert þetta. Eftir hverju er að bíða?

Höfundur er sérfræðingur í klínískri sálfræði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Biskupsval

Sigfinnur Þorleifsson,Vigfús Bjarni Albertsson skrifar

Sjá meira


×