Innlent

Á sjötta tug horn­firskra hrossa slátrað vegna al­var­legs brots

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þessir hestar tengjast fréttinni ekki beint.
Þessir hestar tengjast fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm

Matvælastofnun hefur lagt tímabundið bann við búfjárhaldi á umráðamann búfjár á ótilgreindum bæ í Hornafirði vegna alvarlegs brots á dýravelferðarlögum. Fimmtíu og fimm hrossum var slátrað vegna málsins.

Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu á vef Matvælastofnunar þar sem ekki kemur fram í hverju hin alvarlegu brot fólust.

Tilkynning barst umræddum umráðamanni þann 22. nóvember síðastliðinn þar sem honum var tilkynnt um vörslusviptingu hrossa á bænum.

Flest hrossin á bænum voru í eigu viðkomandi umráðamanns en þó ekki öll. Öðrum eigendum var gefinn kostur á að taka hrossin í eigin umsjá.

Settur var bústjóri yfir búinu og hrossin flokkuð fyrr í vikunni. Var ákveðið, í samráði við eigandann, að senda fimmtíu og fimm hross til slátrunar.


Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×