Fótbolti

Messi með ó­trú­legt stoð­sending­met í MLS deildinni í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi (10) fagnar marki með Luis Suárez (9) en sá argentínski setti tvö met í leiknum í nótt.
Lionel Messi (10) fagnar marki með Luis Suárez (9) en sá argentínski setti tvö met í leiknum í nótt. AP/Mark Stockwell

Lionel Messi er á fullri ferð með liði Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta og hann var allt í öllu í stórsigri liðsins í nótt.

Messi skoraði eitt mark í 6-2 sigri á New York Red Bulls en hann setti nýtt met í deildinni með því að gefa fimm stoðsendingar í leiknum.

Messi átti því þátt í öllum sex mörkum liðsins en því hafði enginn leikmaður heldur náð áður í sögu MLS deildarinnar.

Luis Suárez skoraði þrennu í leiknum og Matias Rojas var með tvö mörk. Suárez lagði upp mark Messi.

Það ótrúlega við þessi úrslit er að Inter Miami liðið var 0-1 undir í hálfleik.

Hinn 36 ára gamli Messi er nú kominn með tíu mörk og þrettán stoðsendingar í aðeins átta deildarleikjum á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×