Enski boltinn

Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jens Lehmann fagnar Englandsmeistaratitlinum 2004 með Ray Parlour.
Jens Lehmann fagnar Englandsmeistaratitlinum 2004 með Ray Parlour. Getty/Stuart MacFarlane

Jens Lehmann, fyrrum markvörður Arsenal, er nú eigandi „Invincibles“ nafnsins sem er gælunafn Arsenal liðsins frá 2003-04 tímabilinu.

Lehmann keypti einkaréttinn á nafninu fyrir þrjátíu þúsund pund eða 5,3 milljónir íslenskra króna.

Lehmann er að setja upp fyrirtæki í tenglum við eignarhald sitt á „Invincibles“ og segist bæði hafa stuðning leikmanna „Invincibles“ liðsins sem og knattspyrnustjórans Arsene Wenger.

Arsenal varð enskur meistari tímabilið 2003-04 eftir að hafa taplaust í gegnum alla deildarkeppnina. Það hafði ekki gerst í ensku deildinni síðan 1888–89 (Preston North End) og hefur ekki gerst aftur síðan.

Arsenal sofnaði á verðinum og taldi sig hafa rétt á nafninu eftir að hafa skráð það áður. Nú er tuttugu ára afmæli þessa titils og mikið í gangi því tengdu.

Lehmann segir að heimildarmynd, æfingaferð til Bandaríkjanna og leikur gegn goðsögnum Manchester United komi til greina en segist að allur ágóði muni fara til góðgerðamála.

„Ég fékk hugmyndina af því að „Invincibles“ nafnið verður alltaf vinsælla og vinsælla eftir að styttist í tuttugu ára afmælið,“ sagði Lehmann við Daily Mail en Guardian segir frá.

„Enginn átti nafnið og ég var að skoða þetta. Ég vildi tryggja okkar hóp nafnaréttinn þannig að allir sem nota það í leyfisleysi væru að misnota okkar vörumerki,“ sagði Lehmann.

„Þetta kom félaginu líklega aðeins á óvart af því að það datt engum þar í hug að tryggja sér nafnaréttinn. Félagið veit alla vega núna að það er verið að stýra notkun þess,“ sagði Lehmann.

Lehmann var markvörður Arsenal frá 2003 til 2008. Tímabilið 2003-04 var hans fyrsta hjá félaginu en hann leysti þar af goðsögnina David Seaman. Lehman fékk aðeins á sig 26 mörk og hélt marki sínu hreinu í fimmtán leikjum af 38.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×