Skoðun

Kveikur brennur út

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Lengi hefur greinarhöfund grunað að málefni sem tekin eru til meðferðar í Kveik ríkisút varpsins (RUV ohf.) séu þar vegna persónulegs áhuga forsvarsmanna frekar en fréttagildis. Nefna má að greinarhöfundur hefur ítrekað vakið athygli Kveiksfólksins á örlögum þúsunda sem misstu húseignir sínar í hendur þáverandi Íbúðalánasjóðs og stóðu uppi heimilislaus. Greinarhöfundur hefur einnig komið upplýsingum hvað þennan hóp varðar í hendur Kveiksfólksins en áhugi á umfjöllun um þennan stóra hóp Íslendinga er enginn.

Nú nýlega staðfestist grunur greinarhöfundar þegar umfjöllun eins best menntaða fjölmiðlamanns landsins um gjafagjörning borgaryfirvalda í þágu olíufélagananna og eigenda þeirra var hafnað. Ekki einungis var umfjölluninni hafnað með aumlegri rökleysu heldur var fjölmiðlakonunni úthýst úr Kveik með dæmalausum hroka og kvenfyrirlitningu. Við blasir að tengsl RUV ohf. forystunnar við borgaryfirvöld eru ærin og víðfeðm. Þannig er fráfarandi útvarpsstjóri fyrrum helsti samstarfsmaður fyrrverandi borgarstjóra og núverandi borgarstjóri fyrrum innanbúðarmaður á RUV ohf. Ljóst virðist að hagsmunatengsl og kunningsskapur nú og fyrr þvælist fyrir ,,rannsóknarblaðamennsku” Kveiks í málum sem snerta borgaryfirvöld í Reykjavík og háttsemi þeirra.

Framkoma ritstjóra Kveiks í garð samstarfskonu er síðan kapítuli út af fyrir sig. Að ráðast að samstarfskonunni með þeim orðum að hún hafi ekki það sem til þarf til að sinna ,,rannsóknarblaðamennsku” en sé ágætur fréttalesari hlýtur að vera metjöfnun í kvenfyrirlitningu og hroka. Það er nú heldur ekki eins og ritstjórinn hafi úr háum söðli að detta í blaðamennsku. Afsökunarbeiðni hlýtur að líta dagsins ljós ásamt birtingu umfjöllunar samstarfskonunnar eigi ritstjórinn að eiga framtíð fyrir sér.

Nokkur flótti hefur brostið í lið Kveiks undanfarin misseri mest vegna mála sem enn eru til meðferðar m.a. hjá dómstólum og ekki útséð um hvernig fer. Einhverjir hafa farið til starfa með samstarfsfólki á Heimildinni en aðrir fengið mýkri lendingu. Í nýlegri bók um aðför Seðlabankans að Samherja með dyggri aðstoð RUV ohf. er að finna nokkrar lýsingar á starfsháttum fyrrum liðsmanna Kveiks og eru þær athyglisverðar þó ekki sé fastar kveðið að orði. Það er í raun og sann óþolandi að starfsfólk stærsta fjölmiðils á Íslandi sem að auki er í opinberri eigu þrátt fyrir oháeffið skuli verða bert að því ítrekað að svala eigin hvötum í leit að hneykslunarhellum en láta lögmál vandaðrar fjölmiðlunar lönd og leið. Þetta nýjasta útspil ritstjóra Kveiks og sú grímulausa hagsmunagæsla sem birtist í athöfnum hans kallar á endurskoðun á aðkomu ríkisins að rekstri fréttastofu að mati greinarhöfundar. Rekstrarform RUV ohf. virkar greinilega ekki. Stjórn félagsins fær ekki ráðið við það net frændhygli sem umvefur starfsemi félagsins. Þörf er á alvöru úttekt á hlutverki og starfsemi RUV ohf. sem er að öllum líkindum verndaðasti vinnustaður landsins og biðst ég velvirðingar á samlíkingunni. Í rekstri RUV ohf. skiptir ráðdeild engu. Vasar eigendanna eru djúpir og þeir eru aldrei spurðir hvort þeir vilji raunverulega standa að þessum rekstri. Nauðungaráskrifti og ótakmarkaðar fjárheimildir úr ríkissjóði auk fílaspora RUV ohf. á auglýsingamarkaði borga brúsann.

Höfundur er um sinn fyrrverandi þingmaður Miðflokksins og situr í stjórn flokksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×