Innlent

Hæg­lætis­veður í dag en gular við­varanir í nótt

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Hæglætisveður verður á höfuðborgarsvæðinu í dag. 
Hæglætisveður verður á höfuðborgarsvæðinu í dag.  Vísir/Vilhelm

Búast má við hæglætis veðri víðsvegar á landinu í dag. Í kvöld fer hinsvegar að hvessa og klukkan fjögur í nótt taka gular viðvaranir gildi. 

Í dag er spáð hægri suðlægri vindátt víðast hvar á landinu. Hiti verður á bilinu 0 til 7 stig. Búast má við stöku skúrum eða éljum, en léttir til um landið norðaustanvert. Á Vestfjörðum er spáð vægu frosti, dálítilli snjókomu auk norðaustanátt og stinnindskalda.

Í kvöld og í nótt tekur að hvessa allvíða um landið. Búist er við norðaustanátt á bilinu 13 til 23 metrum á sekúndu og hita í kringum frostmark. Þá taka gular viðvaranir gildi í fjórum landshlutum klukkan fjögur í nótt.  Það er á Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum, og Ströndum og Norðurlandi vestra. 

Gular viðvaranir taka gildi í þremur landshlutum í nótt.Veðurstofan

Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir á flugsamgöngum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×