Viðskipti erlent

Ofsagróði hjá olíurisunum eftir inn­rás Rússa í Úkraínu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Olíufélögin hafa hagnast gríðarlega á hörmungunum í Úkraínu.
Olíufélögin hafa hagnast gríðarlega á hörmungunum í Úkraínu. Getty

Fimm stærstu skráðu olíufélög heims hafa hagnast um 280 milljarða Bandaríkjadala frá því Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði innrásina í Úkraínu.

Innrásin varð til þess að eldsneytisverð hækkaði gífurlega og gasreikningurinn einnig hjá heimilum um allan heim. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá mannréttindasamtökunum Global Witness en Guardian fjallar um málið.

Félögin fimm eru BP, Shell, Chevron, ExxonMobil og TotalEnergies. Guardian fjallar um málið og bendir á að hagnaður bresku félaganna tveggja, BP og Shell, sé nægur til að borga rafmagnsreikninginn hjá öllum heimilum á Bretlandseyjum, í sautján mánuði í röð.

Patrick Galey, sérfræðingur hjá Global Witness segir að þrátt fyrir að innrásin í Úkraínu hafi haft geigvænlegar afleiðingar fyrir milljónir manna þá séu olíufélögin greinilegir sigurvegarar í stríðinu til þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×