Viðskipti erlent

Verk­föll hafin hjá bíla­risunum í Banda­ríkjunum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Verkalýðsforinginn Shawn Fain var mættur fyrir utan verksmiðju í Michigan í nótt þegar verkfallsaðgerðirnar hófust.
Verkalýðsforinginn Shawn Fain var mættur fyrir utan verksmiðju í Michigan í nótt þegar verkfallsaðgerðirnar hófust. AP Photo/Paul Sancya

Verkalýðsfélag starfsmanna í bílaiðnaði í Bandaríkjunum hefur nú hafið verkfallsaðgerðir eftir að samningaviðræður við stóru bílarisana þrjá í Banndaríkjunum fóru endanlega út um þúfur.

 Aðgerðirnar beinast að Ford, GM og Stellantis, sem er móðurfélag Chrysler og Dodge, meðal annara. Þetta er í fyrsta sinn sem allir stóru framleiðendurnir eru beittir slíkum aðgerðum á sama tíma í sögu bílaiðnaðarins í Bandaríkjunum en til stendur að skella á skæruverkföllum hér og þar í verksmiðjunum til að stöðva framleiðsluna.

Í fyrstu aðgerðunum sem hófust í nótt lögðu um 12 þúsund verkamenn niður störf. Verkalýðsfélagið, sem leitt er af Shawn Fain, fer fram á 40 prósenta launahækkun auk leiðréttinga á ýmsum kjörum.

Fain segir þetta sanngjarna kröfu í ljósi þess að laun æðstu stjórnenda fyrirtækjanna hafa einmitt hækkað um þessa prósentutölu á síðustu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×